Þrír bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, þar af bæjarstjórinn Gunnsteinn Sigurðsson, hafa sent frá sér stuðningsyfirlýsingu við Ármann Kr. Ólafsson til að leiða lista flokksins í bæjarstjórnarkosningunum í vor. Fyrrverandi bæjarstjóri Kópavogs, Gunnar I. Birgisson, sækist einnig eftir fyrsta sæti í prófkjöri flokksins í bænum sem fer fram 20. febrúar næstkomandi.
„Við treystum Ármanni sem leiðtoga sjálfstæðismanna í Kópavogi til að innleiða nýjar áherslur hjá Sjálfstæðisflokknum í bænum og halda í heiðri vinnubrögðum sem byggjast á virðingu gagnvart ólíkum skoðunum, gagnsæi og trausti,“ segir í stuðningsyfirlýsingu sem Gunnsteinn Sigurðsson bæjarstjóri Kópavogs, Ragnheiður K. Guðmundsdóttir og Sigurrós Þorgrímsdóttir skrifa undir.
Gunnar Birgisson hefur enn stöðu sakbornings í rannsókn efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra vegna alvarlegra lögbrota. Hin meintu brot áttu sér stað í bæjarstjóratíð hans og snúa að óeðlilegum lánveitingum Lífeyrissjóðs Kópavogsbæjar til sveitarfélagsins. Gunnar sat þá bæði sem bæjarstjóri og stjórnarmaður í lífeyrissjóðnum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna