ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 11m/s WSW

Áslaug Árnadóttir meðal tólfmenninganna

Jóhann Hauksson johannh@dv.is
15:32 › 12. febrúar 2010
Rannsóknarnefnd Alþingis.

Rannsóknarnefnd Alþingis.

Áslaug Árnadóttir lögfræðingur, sem var starfandi ráðuneytisstjóri sumarið 2008, er samkvæmt heimilldum DV í hópi tólfmenninganna sem fengið hafa bréf frá rannsóknarnefnd Alþingis og geta neytt andmælaréttar næstu daga. Áslaug starfar nú sem lögfræðingur í Reykjavík. Hún var skrifstofustjóri í viðskiptaráðuneytinu í bankahruninu og átti síðar sæti í Icesave-samninganefndinni, sem Svavar Gestsson fór fyrir.

Kvisast hafði að Jón Sigurðsson fyrrverandi formaður Fjármálaeftirlitsins hefði verið í hópi þeirra sem fengu bréf frá rannsóknarnefndinni. Í samtali við DV í gær kannaðist hann ekki við að hafa fengið neina sendingu frá nefndinni.

Meðal þeirra sem fengu bréf frá rannsóknarnefndinni er Jónína S. Lárusdóttir ráðuneytisstjóri í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu. Samkvæmt heimildum DV verða engar breytingar á högum Jónínu í ráðuneytinu nú hvað svo sem verður eftir að niðurstöður nefndarinnar verða birtar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.