Hótel Nordica. Veislan fer fram á Hótel Nordica og fengu 300 manns boðskort eftir því sem næst verður komist. Mynd DV
Þrátt fyrir að Landsbankinn hafi losað Finnboga Baldvinsson, forstjóra Icelandic Group, undan persónulegum ábyrgðum upp á tæpan einn og hálfan milljarð stuttu eftir hrun virðist fjárskorturinn hjá fyrirtækinu ekki vera mikill. Að minnsta kosti ef ekki ef marka má glæsilegan veislu fyrirtækisins sem fer fram í kvöld á Hótel Nordica.
Veislan í kvöld kemur í framhaldi af Markaðsdegi Icelandic Group sem fram fór í dag. Dagskráin hófst með ávarpi Ingvars Eyfjörð aðstoðarforsjóra og fylgdu yfirmenn fyrirtækisins í öðrum löndum á eftir. Klukkan 19 hófst svo fordrykkur og lýkur Markaðsdeginum með dansleik þar sem hljómsveitin Í svörtum fötum stígur á svið.
Athygli vekur að Gísli Einarsson, fréttamaður RÚV, er veislustjóri í kvöld. Vekur það athygli ekki síst í ljósi þess að aðeins eru tveir dagar síðan Helgi Seljan, fréttamaður Kastljóssins, var með ítarlega úttekt á málefnum Icelandic Group. Kom þar fram að Finnborgi hafi verið losaður undan persónulegum ábyrgðum upp á einn og hálfan milljarð, sem fyrr segir, og verða þær að öllum líkindum afskrifaðar. Finnbogi er þó enn forstjóri í fyrirtækinu og fær næstum sex milljónir króna í laun í hverjum mánuði.
Eftir því sem DV kemst næst var allt að 300 manns boðið í veisluna í kvöld sem þýðir að kostnaðurinn við hana hleypur á milljónum króna.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna