22 ára gamall maður frá Ungverjalandi hefur viðurkennt að hafa ætlað að myrða 22 manns af handahófi. Ástæðuna segir hann vera þá að hann hafi átt 22 slæm ár og hann hafi viljað myrða einn fyrir hvert ár.
Ungverskir fjölmiðlar greina frá málinu í dag en að sögn lögreglu var maðurinn búinn að skipuleggja ódæðið í eitt og hálf ár áður en hann var handtekinn. Ætlaði maðurinn, sem er með byssuleyfi og skráður fyrir öflugri skammbyssu, að láta til skarar skríða í skólanum sem hann gekk í og í verslunarmiðstöð.
Sagði maðurinn, sem kallaður hefur verið Abel S. í ungverskum fjölmiðlum, að skotárásir annarra nemenda í öðrum löndum á undanförnum árum hafi „heillað“ hann og hann viljað leika þær eftir. Vísar hann væntanlega í hörmulegar skotárásir sem orðið hafa á undanförnum árum í skólum í Finnlandi og í Bandaríkjunum svo dæmi séu tekin.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung