Gunnlaugur Erlendsson, starfandi lögfræðingur í Bretlandi og fyrrverandi starfsmaður Novators, upplýsir ekkert um störf sín fyrir lögmannsstofuna Mishcon de Reya. Honum eru ætlaðar 10 milljónir króna fyrir störf sín. Hann kveðst þekkja Sigurð Kára Kristjánsson en hvorugur tjáir sig um það hvort þeir hafi verið í sambandi nýverið vegna starfa Gunnlaugs fyrir lögmannsstofuna.
Sigurður Kári Kristjánsson, aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins, segist ekki vera vinur Gunnlaugs Erlendssonar lögfræðings og ekki hafa séð þann mann í ungliðastarfi Sjálfstæðisflokksins. Sigurður kveðst þó þekkja Gunnlaug en neitar að svara spurningum um það hvort hann hafi verið í sambandi við hann nýverið.
Samkvæmt heimildum DV kemur Gunnlaugur fyrir sem undirverktaki lögmannsstofunnar Mishcon de Reya, en hann býr og starfar í Bretlandi. Breska lögmannsstofan var fengin til að skila gögnum og áliti varðandi Icesave-málið fyrir jól að undirlagi stjórnarandstöðunnar.




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Reiknikúnstir lífeyrissjóðanna „óþolandi og ólíðandi“
EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision
Vítamín í vörina: Tóbaksgjald hindrar innflutning