ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.7° 8m/s SSE

Stunustríð í vesturbænum: Ómennsk kynlífshljóð

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:13 › 1. febrúar 2010
„Sumt fólk er hömlulausara og háværara en annað,“ segir Sigurður Helgi meðal annars í svari sínu.

„Sumt fólk er hömlulausara og háværara en annað,“ segir Sigurður Helgi meðal annars í svari sínu.

„Þetta fólk stundar ástarleiki með þvílíkum ópum og látum að það hálfa væri nóg. Þetta eru öskur og vein af ómennskum toga,“ skrifar einhleyp kona á besta aldri sem býr á fyrstu hæð í þríbýlishúsi í Vesturbænum. Hún sér sig tilneydda til að senda formanni húseigendafélagsins fyrirspurn í DV í dag til að athuga réttarstöðu sína vegna kynlífsóhljóða í ungu pari í risíbúðinni.

Konan segist hafa reynt að tala við parið sem síðastliðið vor keypti rishæð hússins. „En þau hæða mig og hreyta í mig ónotum. Segja mig öfundsjúka og sínöldrandi piparjónku. Þau séu í fullum rétti og mér komi ekki við hvað þau geri í sinni íbúð,“ skrifar hún.

Hún segist meira að segja hafa fengið fólk til að hlusta á ósköpin og hefur víst enginn heyrt annað eins.

„Gestkomandi börn héldu að verið væri að slíta sundur kött þarna uppi,“ skrifar konan og spyr loks Sigurð Helga Guðjónsson, formann húseigendafélagsins, hvort hún þurfi að þola það þegjandi og hljóðalaust að vera dregin nauðug inn í hjónalíf parsins.

Lesa má athyglisvert svar formanns húseigendafélagsins við fyrirspurn konunnar í DV í dag



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?