Steingrímur Hermannsson var fjarri því að vera gallalaus pólitíkus. En hafði tvennt sem gerði hann að framúrskarandi stjórnmálamanni.
Hann kunni að hlusta á ólík sjónarmið og að láta fólk vinna saman. Þess vegna var hann afburða verkstjóri í ríkisstjórn.
Og hann hafði mannlega hlið sem var aðlaðandi, gat játað á sig mistök – þóttist ekki vita allt betur en allir aðrir.
Nú er hann fallinn frá, það eru liðin nítján ár síðan hann var forsætisráðherra. Þegar allt er vegið og metið verður að segja að arfleifð hans sé nokkuð góð.