Guðmundur Ólason og Karl Wernersson, aðaleigandi Milestone, sjást hér á mynd frá árinu 2007. Guðmundur er einn af eigendum félags sem keypti tveggja prósenta hlut í Glitni 2008.
Eignarhaldsfélagið Rákungur skuldar gamla Glitni nærri tíu milljarða króna vegna láns sem bankinn veitti félaginu til að kaupa 2 prósenta hlut í honum á fyrri hluta árs 2008. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins fyrir árið 2008. Félagið er í eigu eignarhaldsfélaga sem eru í eigu forstjóra, aðstoðarforstjóra og starfsmanns eignarhaldsfélagsins Milestone. Glitnir mun hafa haft frumkvæði að því að leita til starfsmannanna Guðmundar Ólasonar, Jóhannesar Sigurðssonar og Arnars Guðmundssonar.
Guðmundur segir, aðspurður í samtali við DV, að verð á hlutabréfum í Glitni hafi verið búið að lækka nokkuð þegar félagið keypti þessi Glitnisbréf og að kaupin á þeim hafi verið tryggð með fjármögnun bankans. Ekki er vitað hver átti bréfin sem seld voru til Rákungs en líklegt er að bankinn hafi átt þau og viljað losa sig við þau.
Rákungur var tólfti stærsti hluthafi Glitnis við fall bankans í október 2008 með 2 prósenta eignarhluta. Þriðji stærsti hluthafi Glitnis var eignarhaldsfélagið Þáttur International með nærri sex prósenta eignarhluta. Það félag var í eigu Karls og Steingríms Wernerssona, eigenda Milestone.
Af orðum Guðmundar að dæma má skilja hann sem svo að frumkvæðið fyrir kaupunum hafi komið frá bankanum. „Mikil spenna var að byggjast upp í fjármálakerfinu,“ segir Guðmundur en eignarhaldsfélagið sem síðar varð að Rákungi var stofnað af lögmannsstofunni Logos í ársbyrjun 2008 og hét þá ELL 145 ehf.
Guðmundur segir að kaup Rákungs í Glitni hafi átt sér stað í mars eða apríl 2008.
„Það kemur upp þessi hugmynd af hálfu bankans. Bréfin voru komin niður í ágætis verð, fjármögnunin á þessu var tryggð og við ákváðum að taka því,“ segir Guðmundur.





Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“
Jóhanna og Steingrímur: „Betri tíð í vændum“
Landlæknir vill fjarlægja alla PIP brjóstapúða