Lögreglan var kölluð að Alþingishúsinu um þrjúleytið í dag til að rýma áhorfendapalla þinghússins vegna óláta sem urðu þegar hópur mótmælenda kom saman og gerði hróp að forseta Alþingis við upphaf þingfundar.
Skrifstofustjóri Alþingis hefur sent frá sér tilkynningu þar sem því er vísað á bug að þingfundur sé lokaður líkt Margrét Tryggvadóttir, þingkona Hreyfingarinnar hafði fullyrt, heldur hafi áhorfendapöllum aðeins verið lokað.
Tilefni mótmælanna að minna þingmenn á óánægju margra með að níumenningarnir svokölluðu hafi verið handteknir og ákærðir í kjölfar búsáhaldabyltingarinnar.
Eftir að út á lóð þinghússins var komið kom til smávægilegra stimpinga milli mótmælenda og lögreglu.
Varðstjóri lögreglu segir að vel hafi gengið að rýma pallana mesti hamagangurinn genginn yfir.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
