Íslendingar eru almennt sáttir með veðrið á Íslandi, vinnuna sína og nágranna sína. Þetta kemur fram á heimasíðu MMR sem kannaði afstöðu landsmanna til þessa þátta. 93,4 prósent landsmanna segjast ánægðir með nágranna sína, 90,3 prósent ánægðir með vinnuna sína og 85,5 prósent ánægðir með veðrið að undanförnu.
Á vef MMR kemur fram að ekki hafi orðið miklar breytingar frá könnun MMR í ágúst á þessu árið þegar ánægja landsmanna með sumarveðrið, vinnu og nágranna var einnig mæld.
Þá sögðust 94,7 prósent ánægðir með veðrið í sumar, 92,9 prósent voru ánægðir með nágranna sína og 91,4 prósent með vinnuna sína. Það bendir því flest til þess að þrátt fyrir neikvæðar veðurspár á köflum þá séu Íslendingar yfirleitt ánægðir með veðrið á Íslandi.
Það eina sem landsmenn eru ekki ánægðir með, af þeim atriðum sem MMR kannaði, er fjárhagsstaða sín en rétt tæpur helmingur þátttakenda eða 49 prósent segjast óánægð með fjárhagsstöðu sína.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
