Langflestir ætla að borða hangikjöt á jóladag, eða tæplega 73 prósent aðspurðra. Mynd Sigtryggur Ari Jóhannsson
Helmingur landsmanna ætlar að borða hamborgarhrygg á aðfangadagskvöld, samkvæmt könnun MMR. Tæplega tíu prósent segjast ætla að borða rjúpu á meðan 8,3 prósent aðspurðra segjast ætla að borða kalkún.
Á jóladag sögðust 72,7 prósent landsmanna líklegast myndu borða hangikjöt og 8 prósent hamborgarhrygg. Segir á vef MMR að svo virðist sem breytileiki í jólamatnum sé aðeins meiri hjá landanum á aðfangadagskvöld en hefðir og venjur ráði ríkjum á jóladag.
Þá eru bornar saman niðurstöðurnar fyrir Ísland við könnun YouGov í Bretlandi. Sögðust 56 prósent Breta ætla að hafa kalkún í matinn á jóladag. Það er því af sem áður var þegar jólagæsin var vinsælust hjá Bretum en nú segjast einungis tvö prósent aðspurðra ætla að borða gæs á jóladag í ár.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
