ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.2° 5m/s ESE

Jón Stóri: Að vera í neyslu er eins og að stunda samfarir með górillu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:08 › 10. desember 2010
Jón Hilmar Hallgrímsson, oft nefndur Jón stóri.

Jón Hilmar Hallgrímsson, oft nefndur Jón stóri. Mynd 365

„Að vera í neyslu er eins og þeir segja, alveg eins og að stunda samfarir með górillu – og þeim er ekki lokið, fyrr en górillan hefur lokið sér af,“ segir Jón Hilmar Hallgrímsson í viðtalshluta nýrrar bókar Helga Jean Claessen, Jóns Saga Stóra. Jón lýsir í opinskáu viðtali fíkniefnaneyslu sinni, lífinu á gráu svæði samfélagsins og því sem fylgir undirheimunum.

Bókin sjálf er skáldsaga um Jón Stóra sem þó er byggð á sönnum atburðum úr lífi Jóns. Í enda bókarinnar er síðan viðtal við Jón þar sem hann opnar sig um hluti sem áður hefur bara verið slúðrað með.

Jón segir frá því að þegar hann var orðinn tvítugur voru fimm af hans vinum dánir. „Meðal annars framdi fyrrverandi kærasta mín sjálfsmorð, einn hengdi sig, annar framdi sjálfsmorð á Litla-Hrauni – mánuði fyrir tvítugs-afmæli sitt – og ein stelpa óverdósaði. Svona hlutir náttúrulega eru ekki alveg eðlilegir, en maður kannski skynjar það ekki svona ungur, þegar maður stendur í hringiðunni. Sjálfur hugsaði ég, að ef ég myndi deyja – að þá væri ég allavega búinn að lifa lífinu,“ segir Jón Stóri í bókinni.

Jón segir eiturlyfjaneysluna hafa haft gríðarlega mikil og mörg óáfturkræf áhrif á sig. Hann hefur fengið hjartsláttartruflanir, áfengiseitrun og nýrun orðin óstarfhæf vegna ofneyslu á e-pillum. Árið 2007 hafði hjarta Jóns stækkað vegna stera- og kókaín-neyslu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.