ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.7° 8m/s SSE

Hákarl réðst á ferðamenn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:29 › 1. desember 2010
Sharm-el-Sheikh er vinsæll áfangastaður meðal ferðamanna.

Sharm-el-Sheikh er vinsæll áfangastaður meðal ferðamanna.

Fjórir rússneskir ferðamenn eru heppnir að vera á lífi eftir að hákarl réðst á þá undan í Sharm-el-Sheihk í Egyptalandi í gær. Um var að ræða tvær árásir en talið er að sami hákarlinn hafi verið að verki í þeim báðum.

Hákarlinum tókst meðal annars að læsa kjaftinum í fótlegg einnar konu og þá tókst honum að rífa handleggi af tveimur öðrum. Sá fjórði slapp betur, að því er segir í frétt á vef Daily Mail.

Ferðamennirnir voru fluttir á sjúkrahús í Kaíró en ástand þeirra er sagt alvarlegt.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?