Guðrún Ögmundsdóttir átelur þingmenn fyrir að hafa ekki staðið vaktina þegar Sigmundur Ernir Rúnarsson fór drukkinn í ræðustól.
„Þingmenn allra flokka bera ábyrgð á því að grípa inn í og mér finnst grætilegt að enginn hafi stöðvað manninn,“ segir Guðrún Ögmundsdóttir, fyrrverandi alþingismaður Samfylkingar, um uppákomuna á Alþingi árið 2009 þegar flokksbróðir hennar, Sigmundur Ernir Rúnarsson, fór drukkinn í ræðustól og varð sér til stórskammar.
Í ævisögu sinni, Hjartað ræður för, segir Guðrún að algengt hafi verið á árum áður að þingmenn væru drukknir í þingsal. Þá hafi félagar þeirra gætt þess að þeir færi ekki í ræðustól.
„Sigmundur Ernir var er sannarlega ekki fyrsti þingmaður sögunnar til að vera undir áhrifum í þingsal. Áður fyrr þótti það meira að segja sjálfsagt...,“ segir Guðrún.
Hún segir að þingheimur hafi áður gætt hinna drukknu. Þannig hafi þingfundi verið slitið skyndilega undir þeim kringumstæðum að þingmaður hafði fengið sér of mikið.
„Einhverju sinni man ég eftir því að þingfundi var slitið þegar einn þingmaður sem var vel við skál ætlaði upp í pontu. Þá voru allir á vaktinni,“ segir Guðrún.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
