ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.7° 8m/s SSE

Formaður stúdentaráðs: „Út fyrir öll velsæmismörk“

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:06 › 28. nóvember 2010
Jens Fjalar Skaptason.

Jens Fjalar Skaptason.

Jens Fjalar Skaptason, formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands, segir Facebook-skrif stundakennara við sálfræðideild Háskóla Íslands, hafa verið fyrir neðan allar hellur. „Þetta er út fyrir öll velsæmismörk sem kennarar ættu að setja sér. Sérstaklega varðandi virðingu kennara gagnvart nemendum,“ segir Jens Fjalar í samtali við DV. Hann segir að það sé nokkuð ljóst að það yrði seint liðið að nemendur myndu mæla svona á Facebook varðandi einstaka kennara. „Það ætti að ríkja gagnkvæm virðing innan skólans.“

DV greindi frá því í dag að stundakennari við sálfræðideild Háskóla Íslands hafi birt Facebook-skrif þar sem hún sagði nemendur ekki fylgjast með í tímum og sagði verkefnin frá nemendum vera léleg og leið henni eins og hún hefði talað við vegg síðastliðnar fimm vikur. Hún baðst afsökunar á þessum ummælum og tók fram í kennslustund eftir þessi ummæli að mörg verkefnana hefðu verið mjög góð.

Sjá einnig:
SÁLFRÆÐIKENNARI Í HÍ FÓRNAR HÖNDUM: NEMENDUR Í BUBBLES OG Á FACEBOOK
Sálfræðikennarinn bað nemendur afsökunar
Formaður félags sálfræðinema: Nemendur voru sárir
Nemendur á Facebook standa sig verr í prófum



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?