ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.7° 8m/s SSE

Manndráp í Hafnarfirði: Lífsýni ónothæf

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:18 › 17. nóvember 2010

Niðurstöður sænskrar lífsýnarannsóknar eru ónothæfar við sönnunarfærslu í manndrápsmálinu sem átti sér stað í Hafnarfirði í ágúst síðastliðnum. Þetta kom fram í hádegisfréttum Stöðvar 2.

Eins og fram hefur komið hefur Gunnar Rúnar Sigurþórsson játað að hafa ráðið Hannesi Þór Helgasyni bana á heimili Hannesar þann 15. ágúst.

Fram kemur á Vísir.is að niðurstöður úr lífsýnarannsóknum sem fengust frá Svíþjóð séu allar ónothæfar í málinu. Lífsýnin munu því ekki gagnast við sönnunarfærslu í málinu. Um er að ræða blóðleifar á skóm Gunnars Rúnars, lífsýni á fatnaði og lífsýni á hinu meinta morðvopni sem Gunnar hefur viðurkennt að hafa losað sig við í smábátahöfnina í Hafnarfirði.

Fyrir liggur hins vegar játning Gunnars, myndbandsupptaka frá smábátahöfninni í Hafnarfirði þar sem Gunnar mun að vísu ekki þekkjast en bifreið hans sést á upptökunni. Gunnar hefur gengist við því að þetta sé upptaka af sér að losa sig við morðvopnið.

Fram kemur á Vísi að niðurstöður úr geðheilbrigðisrannsókn liggi ekki fyrir. Ákæra verður að öllum líkindum gefin út fyrir helgi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?