ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.7° 8m/s SSE

Stjórnlagaþing: Rúmur helmingur ætlar að kjósa

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:49 › 13. nóvember 2010
Rúmur helmingur ætlar að kjósa, 34 prósent eru óákveðin og 11 prósent ákveðin í að kjósa ekki

Rúmur helmingur ætlar að kjósa, 34 prósent eru óákveðin og 11 prósent ákveðin í að kjósa ekki

Rétt rúmur helmingur þeirra sem mega kjósa til stjórnlagaþings ætlar að nýta rétt sinn. Tæp 55 prósent alla hyggst greiða atkvæði í komandi kosningum.

Frá þessu greinir fréttastofa RÚV sem segir að 232 þúsund manns mega kjósa en aðeins ríflega helmingur þeirra ætli að greiða atkvæði. Af þeim sem svöruðu könnun MMR þá voru 34 prósent óákveðin um hvort þau ætla að kjósa eða ekki. Ellefu prósent sögðust hins vegar viss um að þau ætli ekki að kjósa.

Rúm 5 prósent kjósenda eiga lögheimili erlendis og hefur þeim fjölgað um tæp 25 prósent frá síðustu kosningum. Um það bil 7.500 manns fá nú að kjósa í fyrsta sinn.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?