Smokkurinn má ekki vera feimnismál, segir í fréttatilkynningu en þar er sagt frá nýrri smokkaherferð. Yfir hundrað þjóðþekktir Íslendingar hafa ákveðið að taka þátt í herferðinni sem verður í anda þeirrar herferðar sem gerð var árið 1986.
Félagasamtökin Smokkur –sjálfsögð skynsemi, Ástráður félag læknanema og Íslenska Auglýsingastofan standa fyrir herferðinni sem ber sama nafn og sú eldri eða „Smokkur má ekki vera feimnismál“.
Herferðin vakti mikla athygli á sínum tíma enda þörf á að vekja umræðuna um mikilvægi smokksins þar sem HIV / alnæmi var orðinn heimsfaraldur. Nú er tíðini klamydíu hæst á Íslandi af nágrannalöndum okkar og hafa 16 Íslendingar smitast af HIV það sem af er ári.
Í tilkynningunni segir að þessi þróun sé uggvænleg og mikil þörf á að hvetja alla – konur og karla á öllum aldri til þess að nota smokkinn. Líkt og fyrir 25 árum er enn þörf á að minna á að smokkurinn má ekki vera ekki vera feimnismál.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 

Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
Lögreglumennirnir ráðnir á fölskum forsendum
