Samkvæmt nýrri könnun MMR um afstöðu almennings til nokkurra kosta við samsetningu ríkisstjórnar vilja 33,7 prósent að mynduð verði utanþingsstjórn. 49,7 prósent kváðust þeirrar skoðunar að ákjósanlegt væri að mynduð yrði ríkisstjórn án forsætis núverandi stjórnarflokka. 50,3 prósent telja æskilegt að núverandi stjórnarflokkar komi áfram að ríkisstjórn.
813 einstaklingar svöruðu könnun MMR sem gerð var dagana 3. – 5. nóvember.
MMR kannaði afstöðu almennings til nokkurra kosta við samsetningu ríkisstjórnar sem hafa verið í umræðunni að undanförnu. Af þeim sem tóku afstöðu voru 33,7% sem sögðu ákjósanlegast að mynduð yrði utanþingsstjórn, 21,7% vildu óbreytt stjórnarmynstur, 21,1% nefndu að mynduð yrðu samstjórn allra stjórnmálaflokka á Alþingi, 7,5% vildu að fleiri stjórnmálaflokkar kæmu að núverandi ríkisstjórn og 16,0% sögðu ákjósanlegast að mynduð yrði ný ríkisstjórn undir forystu annarra stjórnmálaflokka en nú sitja í ríkisstjórn.
Þannig kváðust að samanlögðu 49,7% þeirrar skoðunar að ákjósanlegast væri að mynduð yrði ríkisstjórn án forsætis núverandi stjórnarflokka (þ.e. ríkisstjórn undir forystu annarra flokka á þingi eða utanþingstjórn). Á hinn bóginn voru 50,3% á því að ríkisstjórnarmynstur með aðkomu núverandi stjórnarflokka væri ákjósanlegast við núverandi kringumstæður (þ.e. í óbreyttri mynd, með aðkomu annarra flokka eða samstjórn allra flokka).
Nokkur munur var á afstöðu svarenda eftir stuðningi við stjórnmálaflokka (ef gengið væri til Alþingiskosninga nú). Í grófum dráttum má sjá þrennskonar skiptingu. Í fyrsta lagi var afgerandi hluti stuðningsfólks stjórnarflokkanna (63%-68%) sem taldi ákjósanlegast að stjórnarflokkarnir sætu áfram í óbreyttri ríkisstjórn. Í öðru voru ekki nema 1-2% stuðningsfólks Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks sem töldu ákjósanlegast sé að núverandi ríkisstjórn sæti áfram óbreytt. Í þriðja lagi átti stuðningsfólk Hreyfingarinnar sem og þeir sem myndu kjósa aðra flokka, skila auðu eða voru óákveðnir það sammerkt að aðhyllast utanþingsstjórn umfram aðra kost.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
Lögreglumennirnir ráðnir á fölskum forsendum
