Samkvæmt heimildum DV var það hópur anarkista sem tók sig til og reif fána sem bar hakakrossinn úr höndum nýnasista á Austurvelli í gær. Fáninn hafði fengið að blakta óáreittur einhverja stund hér og þar á Austurvelli. Þegar honum var svo slegið upp við bálköstinn sem hafði verið tendraður á svæðinu, tóku nokkrir anarkistar sig til og náðu að þrífa hann úr höndum þess sem bar hann. Fánanum var í kjölfarið kastað á bálið við nokkurn fögnuð viðstaddra.
Þess má geta að þetta var í fyrsta skipti frá því á fjórða áratug 20. aldar sem hakakrossinn er viðraður á Austurvelli. Mikill óhugur hefur farið um fólk vegna þessa atviks, en þess má geta að DV hefur heimildir fyrir því að hér sé um að ræða íslenska nýnasistahreyfingu með tengsl við bresku nýnasistahreyfinguna Blood and Honour.
Hópi fólks mun hafa verið ofboðið við að sjá fána nýnasista blakta óáreitta á Austurvelli en tveir fánar með keltneskum krossi sem nýnasista hreyfingar í Evrópu hafa notað sem tákn sitt, blöktu einnig á Austurvelli í gær. DV hefur heimildir fyrir því að þeir fánar hafi einnig verið teknir úr umferð af anarkistum.
Ýmsir úr hreyfingunni hafa orðað það á Facebook að fleiri úr hópi nýnasista muni koma á mótmæli á næstunni, og þá með fleiri fána.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
Lögreglumennirnir ráðnir á fölskum forsendum
