Fyrrverandi ritstjórinn Jónas Kristjánsson vill að stjórnarskráin verndi fjölmiðla. Jónas er í framboði til stjórnlagaþings en hann segir fjölmiðla nánast alltaf vera dæmda seka fyrir móðganir. „Hver bófinn á fætur öðrum hótar fjölmiðlum öllu illu. Sigar lagatæknum á þá, sem ljósta upp um atferli þeirra. Vita, að íslenzkir dómstólar dæma slíkt á færibandi. Fjölmiðlar eru nánast alltaf sekir um móðganir. Meira að segja dæmdir fyrir að hafa rétt eftir viðmælendum sínum,“ skrifar Jónas á bloggsíðu sinni.
Hann segir lög og dómvenju um fjölmiðla vera út í hött á Íslandi, bæði í héraðsdómi og hæstarétti. „Svo er komið, að fjölmiðlar þora varla að skrifa um svínarí af því tagi, sem setti þjóðina á hausinn. Ný stjórnarskrá þarf að taka á þessu og knýja dómara til stefnubreytingar. Upplýsingafrelsi þarf að vera æðra hagsmunum peningabófa.“



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
Lögreglumennirnir ráðnir á fölskum forsendum
