ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.7° 8m/s SSE

Soprano leikkona deyr

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:08 › 31. október 2010
Denise Borino-Quinn sem lék konu mafiósans Johnny Sacramoni í Sopranós þáttunum vinsælu lést af völdum krabbameins á dögunum.

Denise Borino-Quinn sem lék konu mafiósans Johnny Sacramoni í Sopranós þáttunum vinsælu lést af völdum krabbameins á dögunum.

Leikkonan Denise Borino-Quinn sem lék konu mafíósans Johnny Sacramoni í vinsælu sjónvarpsþáttunum um Soprano fjölskyldunna, lést síðastliðinn miðvikudag af völdum krabbameins.

Denise sagði í viðtali árið 2000 hafa fengið hlutverkið eftir að hafa farið í opna áheyrnaprufu með vinkonu sinni sem var að falast eftir hlutverki í þáttunum, en áður hafði Denise starfað sem ritari á lögræðistofu.

Sjónvarpsþáttaröðin um Sopranos fjölskylduna naut gífurlegra vinsælda út um allan heim og hlaut meðal annars Golden Globe verðlaun fyrir bestu dramaþáttaseríuna árið 2000.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?