Ögmundur Jónasson, dóms- og mannréttindaráðherra, segir það vera varasama hugsun að tala um utanþingsstjórn því stjórnmálastéttin hefur brugðist. „Svo er að skilja að ef við losnum við „þrasið" í stjórnmálastéttinni" og ef við aðeins finnum nokkra ærlega, faglega þenkjandi einstaklinga þá sé hægt að kippa öllu í liðinn. Halda menn að þetta sé svona,“ spyr Ögmundur á heimasíðu sinni.
„Mér finnst þetta vera varsöm hugsun því hún er eins ófrjó og eins ólýðræðisleg og hugsast getur! Verkefnið er að setja fram raunhæfar lausnir, ræða þær opið og lýðræðislega og koma þeim í framkvæmd. Verkefnið er jafnframt að gera samfélagið opnara, gagnsærra og lýðræðislegra. Þess vegna skjóta skökku við hugmyndir um að loka okkur inni og fela okkur forsjá „hins menntaða einvalds" eins og lagt er til,“ skrifar Ögmundur.
Hann segir alhæfingar um stjórnmálastéttina vera fráleitar. „Stjórnmálamenn hafa fylgt mismunandi stefnu og lagt til mismunandi lausnir. Það væri vissulega til bóta ef fólk úr ólíkum stjórnmálaflokkum gerði meira af því að ræða saman á lausnamiðaðan hátt. Þá yrði margt auðleysanlegra. Í þessum skilningi geta stjórnmálaflokkar verið mönnum haft á hugann. En staðreyndin er nú samt sú að þetta gera stjórnmálamenn oft - og eftir því sem losnar um forrræðishyggjuna og mönnum verða tamari lýðræðisleg vinnubrögð, þá gerist þetta oftar. Krafa um utanþingsstjórn er hins vegar ákall um forræðishyggju.“
Hann spyr einnig hverjir það eru sem fólk vill fá að stjórnvelinum. „Á þetta að vera fólk sem vill einkavæðingu eða er á móti henni, á þetta að vera fólk sem styður kvótakerfið eða vill uppræta það, er með stóriðjustefnu og vill selja auðlindirnar, eða vill fjölbreytni í atvinnusköpun og halda í auðlindirnar, vill launajöfnuð eða vill að markaðurinn ráði, vill fara í ESB eða er því andsnúið, með Nató eða á móti, með flatri niðurfærslu skulda eða á móti? - Fólk úr háskólanum? Þeir sem vilja að prófessorsstöður gangi kaupum og sölum eða hinir sem eru því andvígir? Hæstaréttardómarar? Kennarar, hvaða kennarar? Seðlabankastjóri - kannski sá norski? Kannski biskupinn? Eða prófessorar í siðfræði? Kannski allt þetta fólk? En þá þarf að velja það í kosningum. Annað er stæk forræðishyggja - úr fornri forneskju.“
Hann vill einnig trúa fólki fyrir einu. „Á Alþingi situr ósköp venjulegt fólk. Fólk sem skuldar og á margt í erfiðleikum með að borga af lánunum sínum, fólk sem þarf að fara til læknis, fólk sem er með börn í skóla og á aldraða foreldra. „Stjórnmálastétt" innmúruð í samtryggingu? Ekki hef ég orðið þess var.“



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
Lögreglumennirnir ráðnir á fölskum forsendum
