ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.7° 8m/s SSE

Meiri líkur en minni á gosi í Grímsvötnum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:21 › 31. október 2010
Páll Einarsson.

Páll Einarsson.

Hlaup er hafið í Grímsvötnum og segir Gunnar Sigurðsson, vatnmælingarmaður á Veðurstofunni, að meiri líkur en minni séu á því að gos hefjist í Grímsvötnum að loknu hlaupinu. Þetta er haft eftir Gunnari á vef Ríkisútvarpsins en þar sagði hann að búast megi við því að gosið verði svipað og þegar jökullinn hljóp fyrir sex árum.

Hlaupið í Grímsvötnum árið 2004 hófst á sama tíma og núna eða um mánaðarmótin október/nóvember. Hlaupið náði þá hámarki á fimm til sex dögum og býst Gunnar við að svo verði nú. Ekki er talin ástæða til að rýma svæði eða loka vegum vegna hlaupsins.
Grímsvötn hafa verið að undirbúa sig undir gos frá árinu 2004. „Grímsvötn hafa verið að undirbúa sig fyrir næsta gos, eiginlega alveg síðan í síðasta gosi árið 2004,“ sagði Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur í samtali við DV.is fyrr á þessu ári.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?