ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.7° 8m/s SSE

Maxi Rodriguez tryggði Liverpool sigur á Bolton

17:51 › 31. október 2010
Liverpool vann mikilvægan sigur á Bolton.

Liverpool vann mikilvægan sigur á Bolton. Mynd Reuters

Argentínumaðurinn Maxi Rodriguez var hetja Liverpool í dag þegar hann tryggði liðinu sigur á Bolton, 1-0, með sigurmarki fimm mínútum fyrir leikslok. Með sigrinum flaug Liverpool úr fallsæti og upp í það tólfta.

Markalaust var í hálfleik á Rebook þar sem jafnræði var með liðunum. Svíinn Johan Elmandar lét mikið fyrir sér fara í sókninni hjá Bolton en eins og vanalega átti hann erfitt með að koma boltanum í netið.

Þegar fimm mínútur voru eftir af leiknum skoraði Maxi Rodriguez sigurmarkið en hann skaut boltanum þá með tánni að marki og hafði Jussi Jaskelainen hendur á boltanum en tókst ekki að stöðva hann. Líklega hefði sá finnski átt að gera betur.

Bolton er áfram í tíunda sæti deildarinnar með tólf stig en Liverpool hefur tíu stig í tólfta sætinu.

Grétar Rafn Steinsson lék allan leikinn fyrir Bolton og nældi sér í gult spjald.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?