ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.7° 8m/s SSE

Hristi 3 mánaða barn til dauða því hann truflaði Farmville- leik á facebook

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:34 › 31. október 2010
  • Alexandra V. Tobias játaði að hafa hrist 3 mánaða son sinn til dauða því hann truflaði hana við að spila Farmville á facebook.

    Alexandra V. Tobias játaði að hafa hrist 3 mánaða son sinn til dauða því hann truflaði hana við að spila Farmville á facebook.

22 ára kona í Jacksonville Flórída hefur játað að hafa hrist 3 mánaða son sinn til dauða eftir að hann truflaði hana á meðan hún lék sér í Farmville á facebook.

Konan sem heitir Alexandra V. Tobias var handtekin í janúar eftir dauða sonar hennar og sagði við yfirheyrslur hafa orðið reið því strákurinn hafi grátið svo mikið að hann truflaði hana á meðan hún var að spila Farmville, sem er leikur á samskiptasíðunni facebook. Hún sagðist hafa tekið barnið upp og hrist það, reykt eina sígarettu til að jafna sig og hrist það síðan aftur.

Málið var tekið fyrir í rétti á miðvikudaginn og játaði Alexandra að hafa átt sök á dauða hans. Hún gæti átt á yfir höfði sér lífstíðardóm en málið heldur áfram.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?