Lífið gæti ekki verið betra í Newcastle akkurat þessa stundina en Newcastle lagði erkifjendur sína í Sunderland að velli í ensku úrvasldeildinni, 5-1. Til að bæta gráu ofan á svart hjá Sunderland var varnarmaðurinn Titus Bramble sendur af velli með rautt spjald en hann er fyrrum leikmaður Newcastle.
Kevin Nolan átti heldur betur góðan dag á St. James's Park en hann skoraði þrennu í þessum frábæra sigri Newcastle. Hann skoraði fyrstu tvö mörk leiksins á 26. og 34. mínútu en Shola Ameobi kom Newcastle í 3-0 áður en fyrri hálfleiknum lauk.
Shola Ameobi bætti svo við öðru marki sínu og fjórða marki Newcastle á 70. mínútu en fimmtán mínútum áður hafði fyrrum Newcastle-maðurinn Titus Bramble verið rekinn af velli. Kevin Nolan skoraði svo sitt þriðja mark með skalla á 75. mínútu áður en Darren Bent klóraði í bakkann fyrir Sunderland á lokamínútunum.
Með sigrinum komst Newcastle upp í fjórtán stig og heldur sjöunda sætinu. Sunderland er áfram í því ellefta með tólf stig.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Martinez verður Liverpool dýr
Loks töpuðu Skagamenn stigum
Muamba gæti spilað fótbolta að nýju
Balotelli fer ekki fet
Puyol og Villa úr myndinni
