ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.7° 8m/s SSE

Myndband sýnir Gunnar að henda hnífi í sjóinn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:33 › 23. október 2010

Gunnar Rúnar Sigurþórsson sést á myndskeiði af eftirlitsmyndavél við smábátahöfnina í Hafnafirði henda hnífi í sjóinn. Myndbandið er á meðal rannsóknargagna lögreglunnar.

Talið er að hnífurinn sé vopnið sem notað var til þess að ráða Hannesi Þóri Helgasyni bana, í Hafnafirði þann 15. ágúst síðastliðinn. Gunnar var úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 19. nóvember á föstudaginn.

Myndbandið sýnir Gunnar að henda hnífi í smábátahöfnina, að því er fréttastofa Vísis greinir frá. Endanlegar niðurstöður í rannsókn á lífsýnum af vettvangi morðsins liggja ekki fyrir að svo búnu. Gunnar hefur játað aðild að morðinu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?