Egill hjólar í Hannes af fádæma hörku

Sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason hjólar í Hannes Hólmstein Gissuararson prófessor í stjórnmálafræði á bloggi sínu á Eyjunni í dag. Hann sakar Hannes um að ráðast undir dulnefni á samkennara sína við Háskóla Íslands sem og annað fólk.

„Hannes Hólmsteinn Gissurarson skrifar óhróður um samkennara sína og annað fólk undir tveimur dulnefnum: AMX fuglahvísl og Skafti Harðarson. Þetta er allt á sömu bókina lært, í hugarheimi prófessorsins eru allir leigupennar,“ skrifar Egill sem í færslunni sem þykir óvenju harkaleg.

Egill rifjar upp mál í þessu samhengi sem kom upp í Bretlandi fyrr á þessu ári. Sagnfræðingurinn Orlando Figes sem er höfundur bóka um sögu Rússlands réðst víst undir dulnefni á keppinauta sína sem eins og hann fjölluðu um sögu Rússlands. „Það endaði með að því að hann baðst afsökunar, borgaði skaðabætur og fór í meðferð.“

Í harðorðri færslu sinni heldur Egill áfram:

„Hannes hefur þegar fengið viðvörun frá Háskóla Íslands vegna ritstuldar. Hann var dæmdur fyrir ritstuld í Hæstarétti, háskólarektor hafði ekki kjark til að reka hann frá skólanum, sem auðvitað hefði átt að gerast. Það var í raun fáheyrt að hann skyldi halda stöðu sinni.“

„Það er oft kvartað um skort á reglufestu á Íslandi. Hvað um prófessor við Háskóla Íslands – og það er þrátt fyrir allt virðingarembætti – sem skrifar níð um samkennara sína og annað fólk undir dulnefni?“

„Háskólaprófessor sem er með svo ruglaðar skoðanir að hann þorir ekki að kvitta undir þær með eigin nafni – hvaða fyrirbæri er það eiginlega?“

Bloggsíða Egils


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.