Eins og greint var í gær fékk séra Halldóra J. Þorvarðardóttir egg í höfuðið á leið sinni úr Dómkirkjunni fyrir þingsetninguna í gær. Halldóra mun hafa hlotið einhverja áverka við höggið og lýsti systir hennar, Ólína Þorvarðardóttir þingmaður því svo á bloggsíðu sinni í gær að blætt hafi úr eyra systur sinnar og vanginn bólgnað.
Halldóra vildi þó sem minnst gera úr atvikinu í samtali við DV í gær, hún tæki þessu sem hverju öðru hundsbiti. „Ég er nú þannig gerð. Þetta er eitthvað sem við mátti búast, þegar kom í ljós að mótmæli yrðu,“ sagði hún.
DV barst meðfylgjandi myndir af því augnarbliki þegar egg mótmælanda splundrast á andliti prestsins fyrir utan Dómkirkjuna. Séra Halldóra gekk eins og sjá má aðeins rétt á eftir Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, og Karli Sigurbjörnssyni biskup.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013