ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.7° 8m/s SSE

Meirihluti telur þörf fyrir ný framboð á Alþingi

10:11 › 13. október 2010
Meirihluti telur að þörf sé fyrir nýju framboði á Alþingi, samkvæmt könnun MMR.

Meirihluti telur að þörf sé fyrir nýju framboði á Alþingi, samkvæmt könnun MMR. Mynd Sigtryggur Ari Jóhannsson

Rúmlega 70 prósent landsmanna telja að mikil þörf sé fyrir nýju framboði á Alþingi, samkvæmt niðurstöðu könnunar sem MMR framkvæmdi. 17,9 prósent töldu að lítil þörf væri á nýju framboði til viðbótar eða í staðinn fyrir þá stjórnmálaflokka sem eiga fulltrúa á Alþingi. 11,8 prósent voru á báðum áttum

Könnun MMR var framkvæmd dagana 5. til 8. október og svöruðu henni 830 einstaklingar. Séu svör skoðuð eftir lýðfræði svarenda má sjá nokkuð jöfn viðhorf til málefnisins milli hópa. Þó með þeim undantekningum að 60,7 prósent svarenda yfir fimmtugu, 63,7 prósent þeirra sem búa utan höfuðborgarsvæðisins og 64,4 prósent þeirra sem búa við heimilistekjur á bilinu 400 til 599 þúsund töldu mikla þörf mikla fyrir ný framboð.

Í öllum öðrum hópum sem skoðaðir voru reyndist fjöldi þeirra sem töldu mikla þörf vera fyrir ný framboð vera um og yfir 70 prósent.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?