ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.7° 8m/s SSE

Geðrannsókn Gunnars lokið: Beðið eftir niðurstöðum læknis

22:11 › 12. október 2010
Rannsóknin á morðinu sem Gunnar Rúnar hefur játað á sig er á lokastigi. Niðurstöðuum úr DNA-rannsókn og geðrannsókn er beðið.

Rannsóknin á morðinu sem Gunnar Rúnar hefur játað á sig er á lokastigi. Niðurstöðuum úr DNA-rannsókn og geðrannsókn er beðið.

Gunnar Rúnar Sigurþórsson, sem situr í gæsluvarðhaldi eftir að hafa játað að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana þann 15. ágúst síðastliðinn, hefur lokið geðrannsókn og bíður lögreglan nú eftir niðurstöðum geðlæknis. Gæsluvarðhald yfir Gunnari rennur út í næstu viku.

Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild segir í samtali við DV.is í kvöld að lítið nýtt sé að frétta af rannsókn málsins. Enn sé beðið eftir niðurstöðum frá Svíþjóð úr lífsýnum sem send voru til rannsóknar.

„Við bíðum eftir endanlegum niðurstöðum úr sýnum, krufningu og geðrannsókn áður en hægt er að senda málið til saksóknara,“ segir Friðrik Smári. Hann segir viðtölum Gunnars við geðlækni vera lokið en læknirinn eigi eftir að skila af sér niðurstöðum. Rannsókn sé þó, líkt og áður hefur komið fram, að mestu lokið.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?