51 árs gamall starfsmaður orkuvers í St. Louis í Bandaríkjunum skaut að minnsta kosti tvo samstarfsélaga sína til bana þegar hann mætti til starfa í morgun. Talið er að maðurinn hafi svipt sig lífi eftir ódæðið en það hefur ekki fengist staðfest. Að sögn sjónarvotta mætti maðurinn til vinnu klukkan hálf sjö í morgun að staðartíma með stóran riffil og skammbyssu.
Skotárásin hófst á bílaplani fyrir utan verksmiðjuna en að sögn lögreglu er ekki vitað hversu mörgum skotum var skotið. Fimm aðrir særðust í árásinni, misalvarlega að því er bandarískir fjölmiðlar greina frá. Fjölmargir starfsmenn fyrirtækisins hlupu upp á þak verksmiðjunnar og földu sig einnig inn í skápnum til að forðast kúlnahríðina.
Ekkert liggur fyrir um tildrög árásarinnar en árásarmanninum hafði ekki verið sagt upp störfum eftir því sem næst verður komist.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung