Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Vegna hins harða veturs sem frændur vorir Danir hafa búið við undanfarið er verulega farið að sjá á saltbirgðum landsins og þrír stærstu saltframleiðendur landsins hafa tekið upp skömmtun svo allir fái eitthvað. Nú þegar er víða farið að forgangsraða vegum til söltunar.
Ef vetrarhörkur verða áfram í Danmörku er hætt við að Danir neyðist til að undirbúa sig fyrir hálku á vegum. Í sumum bæjarfélögum hafa yfirvöld gripið til þess ráðs að nota sand í staðinn fyrir hið dýrmæta salt sem að öllu óbreyttu verður með öllu uppurið innan nokkurra vikna.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu