ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Safna fimm tonnum af dósum til að eiga fyrir brúðkaupinu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:18 › 7. janúar 2010
Dósapar. Það verður spennandi að sjá hvort þeim takist ætlunarverk sitt.

Dósapar. Það verður spennandi að sjá hvort þeim takist ætlunarverk sitt.

Kærustupar frá Washington í Bandaríkjunum ætlar að fara heldur óhefðbundna leið til að láta draum sinn um hjónaband og veglega brúðkaupsveislu rætast; safna dósum. Parið hefur þegar safnað átján þúsund áldósum sem þau geyma í stofunni á heimili þeirra. Þau eru þó enn langt frá markmiðinu því þau stefna á að safna 400 þúsund dósum.

Í samtali við bandaríska fjölmiðla segja þau Andrea Parrish og Peter Geyer að þau fari þessa leið meðal annars vegna virðingar sinnar við umhverfið. Ástæðan sé þó auðvitað, þegar öllu er á botninn hvolft, ást og umhyggja fyrir hvort öðru.

Þau Parrish og Geyer stefna á að ganga í það heilaga þann 31. júlí næstkomandi og því ljóst að mikil vinna býður þeirra ef markmiðið á að nást. Takist þeim ætlunarverk sitt, að safna 400 þúsund dósum, er eins gott að þau séu með nóg pláss í stofunni hjá sér því þyngdin mun nema fimm tonnum.

Þau hafa opnað heimasíðu til að vekja athygli á málinu. Hún er á slóðinni www.weddingcans.com.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.