ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Raungengi krónunnar í 95 ára lágmarki

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:10 › 7. janúar 2010
Raungengi krónunnar náði botninum á síðasta ári.

Raungengi krónunnar náði botninum á síðasta ári. Mynd DV

Raungengi íslensku krónunnar á síðasta ári var það lang lægsta undanfarin 95 ár eða svo. Þetta kemur fram á vef Greiningar Íslandsbanka.

Þar kemur fram að á mælikvarða hlutfallslegs verðlags hafi raungengið verið tæplega 29 prósentum undir meðaltali áranna 1980 til 2008. Munurinn var þó enn meiri ef stuðst er við hlutfallslegan launakostnað, en á þann kvarða var raungengið nærri 37% undir meðaltali síðustu þriggja áratuga. Er það til marks um hrun í kaupmætti á alþjóðlegum mælikvarða sem orðið hefur hér á landi frá bankahruninu haustið 2008.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.