Ólafur Ragnar ræddi við blaðamenn á Bessastöðum í dag. Hann hefur orðið var við aukinn skilning undanfarna daga. Mynd Róbert Reynisson
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir að hann hafi orðið var við aukinn skilning og jafnvel stuðning í útlöndum í gær og í dag. Ólafur ræddi við blaðamenn á Bessastöðum í dag þar sem hann fór yfir atburðarás síðustu daga.
Ólafur nefndi sem dæmi leiðara Financial Times í morgun sem var hliðhollur Íslendingum. Margir hefðu óttast viðbrögð fjármálaheimsins – því væri afar mikilvægt að jafn virtur fjölmiðill og Financial Times hefði lýst yfir stuðningi við ákvörðun hans að vísa Icesave-málinu til þjóðarinnar. Þá hafi hann náð að útskýra málið í fjölmörgum erlendum fjölmiðlum í gær og í dag.
Ólafur sagði einnig á fundinum að það væri í raun skrítið ef stjórnvöld í Bretlandi og Hollandi færu að grípa til aðgerða út af þjóðaratkvæðagreiðslu. Þá svaraði Ólafur fyrir þá gagnrýni að hann hafi haft lítil samskipti við ríkisstjórnina um ákvörðun sína en til dæmis árið 2004 þegar hann synjaði fjölmiðlalögunum. Hann hafi fundað með fjórum ráðherrum á sunnudaginn og hlustað á rök sem þeir höfðu fram að færa.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna