Lögreglumenn á Selfossi komust í gær á snoðir um fíkniefnaræktun í íbúðarhúsi í Hveragerði. Við húsleit fundust á þriðjahundrað kannabisplöntur. Maður sem var í íbúðinni var handtekinn og færður í fangageymslu.
Að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni var ræktunin í fullum gangi. Á staðnum fannst á annað kíló af tilbúnu marijúana auk þess var þar lítið eitt af hassolíu. Hald var lagt á plönturnar, marijúanablöðin og allan búnað tengdan ræktuninni.
Húsráðandi var yfirheyrður í gær og aftur í dag. Hann játaði að hafa staðið að ræktuninni og að hann hefði verið einn um hana. Þegar plönturnar og fíkniefnin hafa verið vegin, mæld og rannsókn lokið verður málið sent til ákæruvalds til frekari ákvörðunar.
Við ræktunina voru notaðir gróðurhúsalampar. Telur lögregla að það sé mikið áhyggjuefni að menn skuli notast við slíka lampa inni í íbúðarhúsi. Í lömpunum eru 600 watta perur sem hitna mikið. Af þeim getur hlotist eldhætta ef þeir eru hafðir í þröngu rými og hvað þá ef verið er að hylja þá. Einnig má búast við því að lamparnir hafi orðið fyrir hnjaski í meðförum þessara manna og lamparnir í misgóðu ástandi.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna