ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Lík Playboy-fyrirsætu finnst brunnið í ruslagámi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:50 › 7. janúar 2010
Sladewski.

Sladewski.

  • Ruslagámurinn þar sem lík Sladewski fannst.

    Ruslagámurinn þar sem lík Sladewski fannst.

Lík Playboy-fyrirsætunnar Paulu Sladewski fannst illa brunnið í ruslagámi í Miami en hennar hafði verið saknað síðan á sunnudagsmorgun eftir riflildi við kærasta sinn. Lík hinnar 26 ára gömlu fyrirsætu var svo illa leikið að lögreglan þurfti að notast við tannlæknaskýrslur til að bera kennsl á hana.

Ekki er vitað hvernig hún var myrt en lögreglan telur hana hafa verið látna þegar kveikt var í líkinu. Hún var stödd í Miami til að vera viðstödd gamlárspartý með kærasta sínum. Sladewski vann aðallega sem nektardansmær en hún birst i myndbandi Playboy: The ultimate Playmate search árið 2003.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.