ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.1° 8m/s S

Lifði af fall af átjándu hæð

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:35 › 7. janúar 2010
Sextíu metra fall af átjándu hæð. Þótt ótrúlegt megi virðast lifði Ou fallið af.

Sextíu metra fall af átjándu hæð. Þótt ótrúlegt megi virðast lifði Ou fallið af.

26 ára gömul kínversk kona getur þakkað fyrir að vera á lífi eftir að hún féll fram af svölum á átjándu hæð á heimili sínu í Peking á dögunum.

Konan, sem heitir Ou samkvæmt kínverskum fjölmiðlum, var að hengja út þvott á svölunum þegar hún rann og hrapaði til jarðar.

Það varð konunni til happs að hún lenti á runnum sem þaktir voru snjó sem drógu af henni fallið. Talið er að fallið hafi verið um sextíu metrar.

Gangandi vegfarandi kom að Ou þar sem hún lá meðvitundarlítil á jörðinni. Hún var flutt á nærstatt sjúkrahús þar sem læknar meðhöndluðu hana. Hún slasaðist mikið og braut fjölda beina en er þó ekki í lífshættu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.