„Ég lýsti áhyggjum af trúverðugleika blaðsins í samtali við RÚV daginn sem Davíð Oddsson var ráðinn. Í uppsagnarbréfinu var vísað til skipulagsbreytinga síðan í september og hagræðingaraðgerða í kjölfar þeirra. Þetta finnst mér orka tvímælis þar sem fjöldi blaðamanna hefur hætt síðan þá og aðrir verið ráðnir í staðinn,“ segir Elva Björk Sverrisdóttir, varaformaður Blaðamannafélags Íslands og fyrrverandi blaðamaður á Morgunblaðinu.
Elva Björk átti að hefja störf á Morgunblaðinu á mánudag eftir að hafa verið í fæðingarorlofi. Um áramótin var henni hinsvegar tilkynnt að ekki væri lengur óskað eftir starfskröftum hennar.
Elva lýsti, sem fyrr segir, áhyggjum af trúverðugleika Morgunblaðsins þegar Davíð var ráðinn ritstjóri og gefur hún lítið fyrir útskýringar fyrrum yfirmanna sinna á uppsögninni. Hún veltir því fyrir sér hvort uppsögnin standi í sambandi við ummæli sín um Davíð í september.
„Mér finnst ekki trúverðugt að vísa til hagræðingar í september núna um áramótin eftir að ýmislegt hefur breyst á blaðinu. Þetta eru samt einu skýringarnir sem ég fékk,“ segir Elva.
Skemmst er að minnast þegar Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur, formanni Blaðamannafélagsins, var sagt upp í september síðastliðnum ásamt fjölda annarra starfsmanna. Uppsögnin kom mörgum á óvart ekki síst í ljósi þess að Þóra hafði fyrr um árið fengið verðlaun frá Blaðamannafélaginu fyrir sjónvarpsfréttir á mbl.is.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna