Hollenski blaðamaðurinn Max Pam hjá dagblaðinu de Volkskrant skrifar bloggfærslu á vefútgáfu blaðsins í dag. Greinin ber titilinn „Hættið að leggja Ísland í einelti“ og fer blaðamaðurinn um víðan völl, segir frá ótrúræknum íslenskum konum, bragðlausum íslenskum bjór, breskum sjóræningjum og segir að Íslendingar beri engin skylda til að borga brúsann fyrir gráðuga Hollendinga.
Max Pam segir fjarstæðu að krefja Íslendinga um fjárhæðirnar. „Íslendingar hafa rétt fyrir sér þegar þeir segjast ekki vilja borga fyrir tap særðra sparifjárseigenda hjá Icesave. Innistæðueigendurnir tóku áhættuna sjálfir í leit að háum vöxtum. Synjun Ólafs Grímssonar forseta er réttmæt.“
„Icesave var einkarekinn banki. Peningarnir í bankanum eru glataðir. Íslenska þjóðin hefur ekki notið peninganna. Ísland er ekki ríkt land. Atvinnuleysi er mikið,“ segir Max.
„Veturnir eru langir og næturnar líka. Og á sumrin eru dagarnir langir. Íslenska landslagið býr yfir undraverðri fegurð. Fiskurinn í hafinu í kringum eyjuna er aðal tekjulindin,“ segir Max Pam og minnist þorskastríðina og rányrkju Breta á Íslandsmiðum.
Bretar hafi verið brjálaðir að siga herskipum á örvæntingarfulla Íslendinga. Hann fordæmir hollenska fjármálaráðherrann Wouter Bos fyrir að ganga í lið með Bretum gegn Íslandi. „Wouter Bos knésetur Íslendinga með bresku sjóræningjunum og þjófunum.“
Hann hefur komið til Íslands. „Ég hitti marga sem ætluðu að flýja landið, þegar ég var á Íslandi. Það hafa þeir líklega gert nú þegar. Margir munu fyllast af heimþrá, en þeir fara ekki heim því það er ekki vinnu að fá. Þeir geta allavega huggað sig við aukið brennivínsmagn í útlöndum.“ Svo virðist sem Max hafi ekki uppgötvað Vínbúðir ÁTVR því hann segist einungis hafa fundið bragðlausan og áfengislítinn pilsner í Íslandsdvöl sinni.
Hann lýsir Íslandi sem fögru landi en napurlegu. Þar hafi miklir andans menn og konur búið. „Halldór Laxness var Íslendingur sem afrekaði svolítið sem enginn Hollendingur hefur gert: Hann hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels. Á bökkum Ölfusár, á Selfossi, liggur Bobby Fischer grafinn. Sá mikli skáksnillingur, sem var útlagi í heiminum, var ávallt velkominn á vinalega og gestrisna Íslandi.“
Max hefur mikið velt fyrir íslensku kvenfólki: „Vegna kuldans og skammdegisins eru íslenskar konur ástríðufyllstu konur heims. Þær lesa sjaldan biblíuna á kvöldin, en þær vinna reglulega fegurðarsamkeppnir.“
Max Pam líkur máli sínu með ákalli á þingheim: „Þingmenn, koma svo! Látið Wouter Bos hætta eineltinu. Hleypið landinu í Evrópusambandið, í stað þess að láta Íslendinga þjást. Hvað er milljarður fyrir land eins og Holland? Látið gráðuga sparifjáreigendur hjá Icesave borga brúsann! Blómstrandi Ísland er miklu meira virði en nokkur hundruð ævintýramenn sem gráta peningamissinn.“





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna