ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Hátt í fjögur þúsund ökumenn stöðvaðir í átaki lögreglu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:41 › 7. janúar 2010
25 voru handteknir grunaðir um ölvun.

25 voru handteknir grunaðir um ölvun. Mynd DV

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra, hélt úti sérstöku umferðareftirliti í desember en vegna þessa voru 3.747 ökumenn stöðvaðir.

Af þeim voru 25 ökumenn handteknir grunaðir um ölvunarakstur og 26 til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir leyfilegum mörkum. Þrír ökumenn voru grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna.

Af þeim sem voru stöðvaðir reyndust 20 þegar hafa verið sviptir ökuleyfi. Vegna eftirlitsins voru skráð alls 456 brot hjá lögreglu. Mestmegnis var um að ræða að ökumenn höfðu ökuskírteini ekki meðferðis eða að ljósabúnaði var ábótavant. Eftirlitinu var haldið úti bæði að nóttu og degi og á ýmsum stöðum í umdæminu.

Þess má jafnframt geta að hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu voru í desember 2009 skráð 12 umferðaróhöpp vegna ölvunaraksturs. Á sama tímabili árið 2008 voru þau hinsvegar 22 og því er um jákvæða þróun að ræða í þeim efnum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.