Breskur karlmaður komst í hann krappann í fyrradag þegar hann festi getnaðarlim sinn í stálröri. Eftir árangurslausar tilraunir lækna til að losa manninn var brugðið á það ráð að kalla á slökkviliðið sem kom á sjúkrahúsið í Southampton þar sem hann var meðhöndlaður.
Eftir um það bil þrjátíu mínútur tókst slökkviliðsmönnunum, sem voru sjö talsins, loksins að ná rörinu af getnaðarlimi mannsins. Þurftu þeir að beita öflugri sög við verkið. Í frétt breska blaðsins The Sun kemur fram að skurðarblaðið hafi verið fjórar og hálf tomma í þvermál, eða um 11 sentimetrar.
"Litli vinurinn" var blár, marinn og bólginn á eftir en að sögn lækna ætti maðurinn að ná sér að fullu. Maðurinn, sem er um fertugt, gaf starfsmönnum sjúkrahússins engar skýringar á því hvað hann ætlaði sér að gera með rörið.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu