ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.8° 6m/s SE

Einn skór hér, annar þar

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:35 › 7. janúar 2010
Skór mátaður. Líkt og prinsinn í Öskubusku þurftu þjófarnir að finna hinn skóinn.

Skór mátaður. Líkt og prinsinn í Öskubusku þurftu þjófarnir að finna hinn skóinn. Mynd Photos

Eftir Kolbein Þorsteinsson

Sænska lögreglan segist hafa flett ofan af útsmognum þjófum sem lengi voru einu skrefi á undan rannsóknarlögreglunni. Málið snérist um þjófa sem lögðu stund á skóþjófnað í Stokkhólmi og Málmey, en virtust sætta sig við að stela eingöngu dýrum vinstrifótarskóm.

Þegar upp var staðið bentu flestar vísbendingar í aðeins eina átt – yfir sundið til Danmerkur. Þannig er mál með vexti að sænskar skóbúðir stilla alla jafna aðeins vinstrifótarskóm upp í versluninni, en í Danmörku er víst hefð fyrir því gagnstæða og fyrr í vikunni tilkynnti sænska lögreglan að hún hefði flett ofan af snilldaráætlun um að para saman vinstrifótarskó, sem stolið var í Málmey, og hægrifótarskó, sem stolið væri í Kaupmannahöfn.

Algengt en smátt í sniðum
Á vefsíðu The Times er vitnað í Stig Möller, aðstoðaryfirlögregluþjón í Málmey, og að hans sögn er greinilegt að reynsla er komin á stuld af þessu tagi. Um síðustu helgi varð starfsfólk í Entré-verslunarmiðstöðinni í Málmey vitni að því þegar tveir karlmenn á sextugsaldri stálu vinstri skóm og komust undan á hlaupum með sjö slíka. Ef tækist að para vinstrifótarskóna með réttum hægri skóm yrði parið um 180.000 króna virði.
Þrátt fyrir að um hafi verið að ræða tiltölulega lítinn þjófnað er þjófnaður af þessu tagi nokkuð algengur.

Náðust í annarri tilraun
Að sögn Önnu Johansson, afgreiðslukonu í Entré, er það ekki nýtt að vinstri skór hverfi úr hillunum, en ekki hafi tekist að ná þjófunum hingað til.
Anna Johansson sagðist ekki vita af hverju Danir hefðu hægri skóna til sýnis en þar sem þeir gerðu þetta öfugt við Svía hefði vaknað grunur um að hægri skór sem samsvöruðu stolnum vinstri skóm í Svíþjóð hyrfu úr dönskum skóbúðum.
Áðurnefndir skóþjófar komu nokkrum tímum síðar aftur í verslunina í Entré, en riðu ekki feitum hesti frá búðinni í það skiptið. Afgreiðslufólkið bar kennsl á þjófana og hafði hendur í hári þeirra eftir stuttan eltingaleik og kom þeim í hendur laganna varða.

Engin augljós lausn
Á annað hundrað skóverslana eru í Málmey sem er aðeins steinsnar frá Kaupmannahöfn með sínar nokkur hundruð skóverslanir. Í fjölda tilfella eru sömu skómerki til sölu beggja vegna sundsins og víðar í Skandinavíu.
Anna Johansson óttast að skóþjófnaður eigi eftir að færast í aukana í ár því skór séu hentugir til þjófnaðar, einfalt að flytja og koma í verð. Aukinheldur segir hún að skór hafi hækkað í verði undanfarið og vegna kreppunnar hafi verslanir þurft að fækka starfsfólki og séu því ekki eins vel í stakk búnar til að verjast þjófum.

Engin samvinna við Dani
Haft er eftir Lars-Håkan Lindholm, talsmanni lögreglunnar í Málmey, á vefsíðu The Times að engin gögn væru fyrirliggjandi um hve mörgum vinstri skóm hefði verið stolið og að engin samvinna hefði verið með dönsku lögreglunni vegna málsins.
Ein möguleg lausn til að koma í veg fyrir þjófnað á vinstri skóm í Svíþjóð væri að danskir skókaupmenn tæku upp þann sið að hafa eingöngu vinstri skó til sýnis í verslunum sínum, en að mati Marie Andersen, afgreiðslustúlku í skóverslun í Kaupmannahöfn, er sú laus ekki raunhæf. „Það er enginn tilgangur í því að skipta yfir í vinstri skó því í Þýskalandi sýna þeir hægri skóinn,“ sagði Marie í viðtali við The Times.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.