Össur hefur haft í nógu að snúast í dag. Hann ræddi meðal annars við Olli Rehn og David Miliband. Mynd DV
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra fluga í dag til Óslóar til viðræðna við fjármála- og utanríkisráðherra Noregs og mun hann í framhaldinu funda með fjármálaráðherra Danmerkur í Kaupmannahöfn. Utanríkisráðuneytið hefur sent frá sér upplýsingar um hvað fjármálaráðherra, utanríkisráðherra og efnahags- og viðskiptaráðherra hafa gert í dag.
Hér er dagurinn í dag:
Fjármálaráðherra flaug í dag til Oslóar til viðræðna við fjármála- og utanríkisráðherra Noregs, og mun í framhaldinu funda með fjármálaráðherra Danmerkur í Kaupmannahöfn.
Á morgun mun fjármálaráðherra einnig ræða við norska og danska fjölmiðla.
Utanríkisráðherra ræddi í dag við David Miliband, utanríkisráðherra Bretlands.
Utanríkisráðherra ræddi í dag við Vygaudas Usackas, utanríkisráðherra Litháen.
Utanríkisráðherra ræddi í dag við Olli Rehn, framkvæmdastjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB og tilnefndan framkvæmdastjóra gjaldmiðilsmála í framkvæmdastjórninni.
Utanríkisráðherra ræddi í dag við Reuters fréttastofuna og AP fréttastofuna.
Efnahags- og viðskiptaráðherra ræddi við eftirtalda fjölmiðla: NRK, TV2, Independent, Berlingske Tidende og Dagens Nyheter,
Efnahags- og viðskiptaráðherra tók þátt í símafundi íslensk-ameríska viðskiptaráðsins í New York þar sem nokkrir fjölmiðlar tóku þátt og fulltrúar erlendra fyrirtækja.
Ekki kemur fram í tilkynningu ráðuneytisins hvað kom út úr þeim viðræðum sem Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti við Olli Rehn, David Miliband og Vygaudas Usackas.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna