Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri í Kópavogi og leiðtogi sjálfstæðismanna í bænum, ætlar ekki að bjóða sig fram fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Gunnsteini en í kvöldfréttum RÚV kom fram að Gunnsteinn teldi að Gunnar Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri og fylgismenn hans, hafi ekki stutt við bakið á sér.
Í tilkynningunni segir Gunnsteinn að ástæðan sé óviðunandi togstreita og óróleiki í röðum sjálfstæðismanna í Kópavogi sem hann segir hafa verið viðvarandi síðan í sumar. Við þær aðstæður geti hann ekki hugsað sér að taka þátt í prófkjöri flokksins.
Tilkynning Gunnsteins:
Um hátíðirnar velti ég því gaumgæfilega fyrir mér að taka þátt í væntanlegu prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi og íhugaði vandlega áskoranir mætra manna um að sækjast eftir forystusæti á framboðslista flokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum. Eftir að hafa vegið saman kosti þess og galla hef ég komist að þeirri niðurstöðu að gefa ekki kost á mér.
Ástæðan er óviðunandi togstreita og óróleiki í röðum sjálfstæðismanna í Kópavogi sem hefur verið viðvarandi síðan í sumar. Þetta ástand torveldar allt starf innan flokksins og veldur flokkadráttum á tímum sem samstaða og einhugur er mikilvægara en nokkuð annað. Ég get ekki hugsað mér að taka þátt í prófkjöri flokksins við þessar aðstæður.
Ég tók að mér að vera bæjarstjóri í Kópavogi til 13. júní næstkomandi og ákvörðun mín nú hefur ekki áhrif á það. Mér finnst ástæða að taka fram að samstarfið innan bæjarstjórnar frá því að ég tók við sem bæjarstjóri hefur gengið mjög vel, bæði með meirihluta og minnihluta.
Ég styð Sjálfstæðisflokkinn og óska þess að kjósendur beri gæfu til að kjósa heiðarlegt og duglegt fólk á framboðslistann sem hefur hugsjónir flokksins og heill bæjarbúa að leiðarljósi í hvívetna.
Kópavogi, 7. janúar 2010
Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri í Kópavogi





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna