Ástþór hefur ritað fjármálaráðherra bréf þar sem hann býður fram krafta sína til lausnar Icesave-málsins. Mynd DV
Ástþór Magnússon, fyrrverandi forsetaframbjóðandi, hefur ritað Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra bréf þar sem hann býður honum krafta sína í Icesave-málinu. Býðst Ástþór til að leita nýrra samninga um Icesave-skuldbindingarnar við bresk og hollensk stjórnvöld.
„Ég tel alla möguleika á að ná betri samningum um Icesave, ekki síst um vaxtabyrðina sem er í raun út af kortinu hvað varðar almenn lánakjör í Evrópu. Engan tíma má missa, við þurfum að hefja þessa vinnu án tafar til að glata ekki því einstaka tækifæri sem nú hefur opnast til nýrra samninga,“ segir Ástþór í bréfinu.
Ástþór segir einnig að nauðsynlegt sé að nýtt fólk komi að þessum samningum fyrir hönd íslensku þjóðarinnar til að ná raunhæfum árangri. „Ég treysti mér til að leiða það ferli,“ segir hann.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna