ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.3° 7m/s ESE

Meirihluti hlynntur ákvörðun Ólafs

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:03 › 6. janúar 2010

Samkvæmt könnun MMR um afstöðu Íslendinga til ákvörðunar forseta Íslands um Icesave-lögin kemur fram að 56 prósent aðspurðra segjast styðja ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar um að staðfesta ekki nýju lögin. 44 prósent segjast ekki styðja ákvörðun forsetans.

58 prósent aðspurðra myndu hafna lögunum í þjóðaratkvæðagreiðslu ef kosið yrði um þau í dag. 42 prósent myndu samþykkja þau.

Könnun MMR var framkvæmt dagana 5.- 6. janúar og var heildarfjöldi svarenda 877 einstaklingar. Samtals tóku 86,6% afstöðu til spurningar um ákvörðun forsetans og 72,2% tóku afstöðu til spurningar um væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu.

Úrtak könnunarinnar eru einstaklingar á aldrinum 18-67 ára, valdir handahófskennt úr hópi 12 þúsund álitsgjafa MMR sem valdir hafa verið með tilviljunarúrtaki úr þjóðskrá og fengnir til þátttöku í netkönnunum með símakönnun.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.