Fjárfestirinn Jón Þorsteinn Jónsson, sem er með réttarstöðu sakbornings í rannsókn sérstaks saksóknara á Exeter-málinu, var stöðvaður á Keflavíkurflugvelli þann 22. desember síðastliðinn með tösku fulla af peningum. Jón var á leiðinni til Bretlands þar sem hann býr ásamt fjölskyldu sinni.
Ástæðan fyrir því að hann var stöðvaður var sú að hann var 2,5 milljónir króna í erlendum gjaldeyri í handfarangri sínum. Lögum samkvæmt má aðeins flytja sem nemur 500 þúsund krónur í gjaldeyri frá Íslandi til annarra landa.
Öryggisverðir í öryggishliðinu á Keflavíkurflugvelli fundu peningana í fórum Jóns Þorsteins. Vegna þess að Jón Þorsteinn var með fimm sinnum hærri upphæð en mátti vera kölluðu þeir á tollverði og lögreglan var látin vita, samkvæmt heimildum DV.
Fjárfestirinn, sem er fyrrverandi stjórnarformaður í sparisjóðnum Byr, hafði losnað úr farbanni skömmu áður en hann var stöðvaður á flugvellinum. Heimildir DV herma að lögreglan hafi heimilað Jóni Þorsteini að halda áfram ferð sinni til Bretlands eftir að hann hafði útskýrt af hverju hann væri með peningana á sér en tollgæslunni ber að láta lögregluna ákveða til að hvaða aðgerða eigi að grípa í slíkum málum.




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision
Vítamín í vörina: Tóbaksgjald hindrar innflutning
Reykjavíkurborg dæmd til að greiða Frjálslyndum 6,7 milljónir